Ásdís Lilja
Dagsetning
10. febrúar 2012
23.08.2007 17:16:58 / adylilja

Komin aftur!!

Já langt frí frá tölvunni ekkert blogg í marga mánuði.... Í síðustu skiptin sem ég hafði bloggað þurfti Bragi að skrifa allt fyrir mig....sá ekkert á tölvuna....

 

En var að fá geggjaða tölvu í gær í afmælisgjöf frá Braga...Já tölvan kostar 349 þúsund í nýherja...Já ég þarf sko öfluga og góða tölvu því það verður settur blindrabúnaður í hana fljótlega og þá þýðir ekkert að eiga eitthvað crap!!

Em ja það styttist í afmælið mitt þann 2 sept.....jibbííí verð aðeins 28 ára, oh já maður er alltaf að yngjast :)

 

Annars er slurk og slatti að frétta...

Við erum alltaf að leyta okkur af íbúð til að kaupa og erum jafnvel að hugsa hvort við getum flutt til Akureyrar..en það kemur ekki í ljós fyrr en seinna hvort það sé hægt....bæði út af læknunum mínum hér og fl... en erum enn bara að spá...

+Eg fór í augnaðgerð í mars og aftur í mai og svo 2 aðrar þar sem ég var vakandi,þannig það er nóg búið að vera að gera hvað varðar augun... já það ball virðist ekki hætta...Fer svo í enn eina aðgerðina í sept eða okt býst ég við...En það þarf að taka vinstra augað og hreinsa það og fl....jammí jammí

 

Annars er allt voða eins er enn með 30 kg af bjúg alltaf í sjúkraþjálfun og bara hangsa og tjilla og reyna að halda líkamanum gangandi... og sofa af mér áföllin sem dynja yfir mann eins og skot úr úr hríðskotabyssu!!!!

 

Já eitt áfallið kom í síðustu viku þegar augnlæknirinn sagði að ég myndi aldrei lesa aftur(án hjálpar) alla vega ekki með hægra auganu....ef ég gæti einhverntímann lesið þá yrði það með vinstra auganu...já og ég sem er blind á því nánast þannig líkurnar eru?? hummm...

 

já og 5 dögum seinna þá sagði nýrnal. að ef ég yrði ófrísk aftur þá myndi það líklegast eyðileggja nýrun alveg,þannig ef ég mun ákveða að fara í gegn með það og verðaa ófrísk munu nýrun annað hvort gefa sig alveg og ég verð tengd í nýrnavélar þangað til ég fæ nýtt nýra eða þau fara sljótt...það er ekki hægt að gefa nýrunum nákvæman tíma en þatta sagði hann...

Þannig ég þarf að velja milli þessara heilsu og því sem ég hef eða meðgöngu sem gæti endað eins og síðast og nýrnabilunar...

Ertu viss um að þú viljir barn

 

já ég var spurð að því!!!

Já margt að hugleiða og ákveða.. það er ekki eins og maður sé að fara að taka einfalda ákvörðun eins og hvort maður eigi nú að vera í reuðum bol eða hvítum?eða hvernig bíl maður eigi að kaupa sér..

 

nei ég væri að leggja líf mitt undir svo.....enn eitt vandamálið

 

En er búin að taka ákvörðun...

 

jæja þetta er gott í dag....Bragi er að koma heim og ég ætla að búa til eitthvað gott....

 

Munið að brosa og vera hress þá kemst maður í gegnum allt....

 

heyrumst....verið dugleg að skrifa línur :)

 

Kv Ásdís

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 23:30:44 / adylilja

Aðgerð 19 mars

Hæ hæ

 

Versta martröð byrjaði fyrir ca 4 vikum. Sjónin fór á betra auganu ! sé bara gráa móðu í báðum augum, er hætt að sjá á sjónvarp, tölvur og er hætt að fara allar mínar ferðir ein, nema strögglast ein í sjúkraþjálfun.

 

Það er loksins komið að aðgerðinni, á mánudag 19.mars. Það á að taka augasteininn í “betra auganu”. Var í laser í síðustu viku á hinu auganu. Er búin að vera að telja niður dagana síðustu vikur, eftir að komast í aðgerðina.

 

Nú er verið að reyna að fókusa á að fá einhverja sjón á augun.

 

Bragi er alltaf að vinna 10 klst á dag og því lítið fyrir mig að gera, sit heima og dunda mér og brosi og hlæ af sjálfri mér, já maður getur verið stundum svo vitlaus svona sjónskertur J  en stundum kemur nú pirringur í mann, t.d. þegar maður hellir oft niður, brýt glös, finn ekki eitthvað inn í ísskáp, og þegar ég labba á veggi.

 

Ég labbaði harkalega á vegg í gær og var að deyja í hausnum. En eftirá er það nú smat fyndið.

 

Ætla að hafa þetta bara stutt núna. Takk æðislega fyrir allar kveðjurnar á síðasta bloggi. Ég mun heimsækja ykkar heimasíður þegar ég mun sjá betur, sem ég ætla mér að gera!

 

 

Elsku Doddi og Halla til hamingju með litla krílið.

Til hamingju með snúlluna ykkar Hulda og Óskar.

 

Það var gaman að heyra í þér Sigrún, auðvitað man ég eftir dansinum okkar J á flottar myndir af okkur dansa dansinn

 

 

Ósk og Gauti, Ég og Bragi erum farin að sakna ykkar. Erum alltaf á leiðinni að hringja. Ég sé engin símanúmer í símanum þannig að ég get ekki hringt þegar ég er ein heima á daginn

 

 

 

Heyrumst eftir aðgerðina bið að heilsa þangað til næst.

 

Kveðja Ásdís Lilja

 

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 18:37:24 / adylilja

KOMIN AFTUR :)

Febrúar strax kominn!!!!

Já oh my god hef ekki skrifað á bloggið í 3 mánuði!!!  Ekki afþví að ég hef verið of busy, heldur vegna þess ap ég HATA að fara í tölvur nú orðið!!!
Já sjónin orðin mjög slæm.  Síðan ég skrifaði síðast er ég búin að fara í 2 augnaðgerðir og eina á leginu, og fékk ný gleraugu í november sem eru +7,0 og það var þvílíkur munur...í smá tíma...en núna eru þau alltof dauf,duga varla.     

En betra augað mitt er að verða mjög mikið í móðu, augasteinninn er orðinn svo skítugur en það er ekki hægt að skipta um hann strax!!
Annars gengu allar hinar aðgerðirnar bara vel ;)

Ég var að telja hversu oft ég fór til lækna á árinu 2006 (blóðprufur,rannsóknir og svoleiðis talið með)  það voru ansi margar ferðir!! ja um 110 sinnum!!aðgerðir taldar með!!


En annars er bara same old same old að grétta af okkur hjúum... Erum geggjað ánægð með 42" sjónvarpið okkar pg heimabíóið,,,alveg súper :)

Erum hætt að borða nammi og drekka gos :) hættum 8 janúar :) en það er í lagi að s,akka u, helgar, en ég geri nú minna að því :) já var svo að byrja í átaki fyrir viku..búin að vera geggjað dugleg að hjóla á þrekhjóli og fleira...en hef aldrei verið þyngri!!! Helvískur bjúgur hefur ekkert runnið af mér!!! ég hjólaði 15 km í gær og fór 130 tröppur á steppernum mínum.. og borða svo hollt....já sama hvað mín gerir þá er alla vega bjúgurinn fastur!!  Svo þýðir ekkert að taka bjúgtöflur fæ suddalega þvagsýrugigt af þeim!!
Já smá í steik á þeim bæ.....en ég skal og get og ætla ;) já það vantar ekki aga á þennan bæ það er eitt sem víst er :)
Já það þurfa ansi mörg kíló að fara 10-15 kg fita en 20-25kg bjúgur!! væri betra að þetta væri allt fita...hægt að brenna henni...hummmmm

Var í Reykjavík í fyrsta skiðti á áramótum núna síðust,hef alltaf verið á Ak.
En það var mjög gaman,vorum ,eð matarboð öll fjölskylda Braga kom.
Ég og Bragi elduðum geggjað góðan mat, vorum með úrbeinaðan hamborgarahrygg grá Nóatúni geggjað góður og hangikjöt og fullt af meðlæti ummm og sósan var jammíí pabbi og Stebbi bróðir kenndu mér að búa til bestu sósu í heimi í gegnum símann :) já hef þetta enn í mér...ekki lengi að læra hlutina ;)

Ég sprengdi ekkert upp,ég gerði það nefninlega 2005 í þeirri von að árið 2006 yrði betra  en nei 2006 var versta ár sem hægt er að óska sér!!! Frá 22 júni til lok ársins!!! já go to hell 2006.
Það er eins gott að þetta ár verði betra... En það byrjaði ekki vel...fyrsti dagurinn á árinu var ég lasin!!! ,eð hita og eitthvað og 15 janúar fór ég í augnaðgerð!!! mmmmm

En núna á föstudaginn er ég að fara að fá lykkjuna, hún á að koma í veg fyrir samgróninga í leginu eftir aðgerðina sem var þar gerð,já og ég má alls ekki verða ófrísk á þessu ári

Það eru allir að tala um utanlandsferðir núna..allir að plana einhverjar ferðir
Ég veit ekki enn hvort við förum eitthvað... það er ekki hægt að plana fram í tímann hjá okkur. Ég má alltaf eiga von á að þurfa að hoppa í aðgerð eins og um daginn, fékk að vita það  10 janúar og aðgerðin var svo gerð 15..... við fórum 2 til útlanda í fyrra
önnur ferðin var ákveðin á föstudegi og við fórum út svo á þriðjudegi og svipað með hina ferðina :)


En já áður en ég dey í augunum verð ég að hætta og fara að setja dropa í augað.. ekki það besta að horfa á tölvuskjá... en augnlæknir á morgun, kvensjúkdómalæknir á föstud svo blóðprufa og nýrnalæknirinn minn fljótlega...... Aldrei stoppar partýið ;)


Reyni að skrifa fljótlega aftur

Endilega skrifið mér línu


Love Ásdís Lilja

» 11 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 23:51:30 / adylilja

HALTUR LEIÐIR BLINDANN

Hæ hæ long time no see...... Ekki alveg dauð ennþá ;) Nei mikið búið að gerast..... Svona í fljótu bragði sagt...skal ég sega ykkur frá því sem hefur vrið að gerast... Ása systir er búin að eiga...hún og Ingþór eignuðust lítinn sætann prins..og þau eru líka búin að skíra...já stubburinn fékk nafnið Guðmundur Gabríel  svaka flott...þannig ég og Bragi erum búin að fara 2 norður í okt. Búin að fara milljón sinnum til læknis síðan ég heyrði í ykkur...hitti stelpurnar í matvælafræðinni 11 okt og það var svakia fjör...bauð þeim heim til mín og hafði ég ekki hitt þær leeeeeeeeeeengiiiiii!!!!!!!!!!!! Erum búin að koma okkur alveg fyrir og fórum um daginn og keyptum okkur 42” LCD sjónvarp-ALVEG MERGJAÐISLEGA FLOTT SJÓNVARP !! OG GEGGJAÐ HEIMABÍÓ...já við þurfum ekki að fara út í bíó bara inn í stofu heima...nice!!!!!! Já Bragi er svo í fríi í alllan nóvember þar sem við vorum svo óheppin að hann fótbraut sig um daginn...já ég segi við vorum óheppin því hvorugt okkar keyrir núna,ferðumst um með taxa og hringjum mikið í tengdó og biðjum um skutl....takk elsku tengdó ! já og Mikael bróðir Braga er lika algjör life safer..... já ekki gott ástand "haltur leiðir blindan" í bókstaflegri merkingu.... Mikið að gerast í læknamálum.....3 aðgerðir núna fyrir jól....ég er búin með eina þeirra....var í aðgerð fyrir 2 dögum síðan á leginu...ja gekk vel það var sem sagt verið að taka vegg sem skipti leginu í 2 hol í staðinn fyrir eitt.. Næsta aðgerð er eftir 9 daga þá er verið að fara að taka úr mér augasteininn og setja í mig nýjan...það er gert í auganu sem ég sé ekki með...svo er önnur aðgerð sem ég er að bíða eftir hún er á betra auganu mínu en himnan þar er afur orðin laus og krumpuð þannig sjónin hefur versnað all svakalega   En ja 3 aðgerðir allar í svæfingu....en 2 eftir....tel niður  Er aðeins að drepast úr verkjum af og til eftir aðgerðina á leginu... en við megum alls ekki verða ófrísk í hátt í ár eftir aðgerðina..... En allt á fullu og allt rólegt hjá okkur hjónakornum,suma daga mjög rólegt svo crazy þann næsta....Erum búin að vera með mjög mörg matarboð undanfarinn mánuð.... Ég fór á glernámskeið í okt og það var æðislega gaman bjó til 3 stóra hluti og einn lítinn kertastjaka geggjað flott... þannig ég ákvað að fara aftur og Bragi rúsína kemur með mér,förum í byrjun des, vonandi orðin betri þá eftir aðgerðirnar, en þá verður augasteinaaðgerðin búin... Já margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast...gat ekki skrifað lengi því netið var aldrei inni og alltaf vesen á því þannig skiptum um símafyritæki...aftur!!!! En reyni að láta líða minni tíma á milli núna ;) Ætla að fara að gera eitthvað sniðugt.....erum með 2 gesti núna, vini hans Braga, vorum að grilla og eru þeir í einhverju Gamble spili,.. Látið heyra í ykkur rúsínurnar mínar !!
 LOVE ÁSDÍS LILJA

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 22:37:41 / adylilja

SKOÐANAKÖNNUN

GLEYMDI AÐ SKRIFA ÁÐAN...
ÞAÐ ER KOMIN NÝ SKOÐUNARKÖNNUN....

ÞETTA ERU 2 SPURNINGAR ÞANNIG ÞAÐ ÞARF AÐ SVARA 2 SINNUM-EKKI HÆGT AÐ SVARA BÁÐUM SPURNINGUM Í EINNI LOTU...SORRY :/

EN ENDILEGA SVARIÐ...MÍN ER ALLTAF JAFN FORVITIN :)

HEY OG ENDILEGA LÁTIÐ HEYRA Í YKKUR ALLIR SAMAN :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 21:52:51 / adylilja

KOMIN MEÐ NETIÐ!!!

JAHÁHÁHÁÁÁ...I´M ALIVE...

Já erum sko flutt og það er búið að taka smá tíma að fá netið!!! En strákur kom áðan og setti það upp fyrir okkur...já og mín fór auðvitað strax á bloggið og skrifa :)

 

Svakalega mikið búið að vera að gerast...já púff....

Fyrsta helgin í sept átti mín afmæli og var fyrir norðan í skírn hjá Söru og Agli. Litla dúllan þeirra var skírð Sigrún Anna. Helgina eftir fórum við aftur norður þá var stebbi bróðir og Guðbjörg að skíra þeirra prins, en hann var skírður Sævar Þór. Já og var svo fyrir norðan á fim til laugardags síðastliðinn, var að láta taka endajaxlana uppi. Svo í gær fór ég í 3 skírnina, það var Halldór bróðir Braga og Ragna að skíra sinn prins, hann var skírður Ingþór Logi.....

 

Já 3 skírnaveislur, þrisvar til Ak, endajaxlataka,halda kökuveislu á Ak (smá get 2 gether fjölskyldan á afmælinu mínu). Já og fyrst og frems sem við höfum verið að gera FLYTJA!!! Hallelúja.... Já erum búin að kaupa fullt af nýju dóti...no old stuff in my house ;) já erum komin með þvottavél,þurrkara,uppþvottavél,ísskáp,sófasett, borðstofuborð og bara name it það er allt að verða komið....Gardínur og netið :)

 

Já mamma og pabbi Braga eru sko búin að vera dugleg að koma kommóðum,gardínunum og stórum tækjum í gang....já ekki slæmt,pabbi hans Braga er smiður :) þannig þetta er sko búið að ganga mjög hratt fyrir sig :)

 

Eigum bara eftir að festa upp myndir og hillur á veggi og kaupa stofuborð þá er þetta orðið enn glæsilegra ;)

En það er komin flott mynd á þetta allt saman...

 

 

Bragi er farin að vinna á fullu og svaka fjör hjá honum :) meðan er ég heima að taka upp úr 700 kössum ;) búið að ganga geggjað vel ;)

 

Það sem bíður mín næstu dagana er að RAÐA BARNAFÖTUM Í ALLAR KOMMÓÐURNAR!! Já við eigum 3 stórar með 6 skúffum og aðra minni með 3 skúffum....OG ÉG HELD AÐ ÞAÐ DUGI EKKI FYRIR ÖLL BARNAFÖTIN SEM VIÐ HÖFUM KEYPT... HUMMMM

 

 

Já allt gengur bara vel hjá okkur, líður svaka vel í nýju íbúðinni. Fæ vonandi lesgleraugu í oktober,ef það gengur upp.. þá get ég vonandi lesið og gert neglur án þess að vera með svaka höfuðbúnað á hausnum!!

Förum norður fljótlega,þar sem styttist í að Ása systir og Ingþór munu eiga sitt kríli..

 

Fékk hringingu í dag frá doktor þar sem hún sagðist vilja senda mig í segulómskoðun á næstu dögum....þannig nú er ég bara að bíða eftir því..

 

Ætla að láta heyra í mér síðar...

 

Takk fyrir afmæliskveðjurnar :)

 

Heyrumst fljótt :)

 

LOVE ÁSDÍS LILJA


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 01:16:20 / adylilja

ERUM AÐ FARA AÐ FLYTJA :)

ALLTAF JAFN ÓHEPPIN!!!!!

JÁ HVAÐ GERÐIST NÚNA ERU EFLAUST MARGIR AÐ HUGSA....JÁ ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT...

 

Fór til doksa í dag, læknirinn sem átti að sjá um mig alla meðgönguna (Hildur). Hún sér um þær sem eru með einhver vandamál eins og t.d sykursýki.

Við Bragi áttum að fá út úr niðurstöðum úr sýnum hvað hefði komið fyrir, afhverju við misstum litla engilinn okkar hana Lilju Dís......

Og hver var niðurstaðan???? Nóta bene, erum búin að bíða í 10 vikur eftir svari!!!!!!!

Já niðurstaðan var engin!!!!!!Óskíranleg!!!

Barnið var 100 % heilbrigt,ekkert að henni. ALLT EÐLILEGT!!!!

Eina skýringin sem þau geta gefið okkur, EN vilja ekki fullyrða það, er afþví að ég er með hjartalaga leg sem er klofið, það er sem sagt tvískipt með vegg á milli og blabla....

 

Sem þýðir það að ég fer í skoðun föstud eftir viku hjá svaka sérfræðingi og hún á að meta legið, vegginn og eitthvað fl og þarf svo líklegast að fara í aðgerð eftir stuttan tíma þar sem þarf að reyna að laga legið, rífa millivegginn í því!!!!!!

 

Já ég hef alltaf sagt það-ég er einstaklega heppin þegar kemur að einhverju sem snertir heilsu og líkama!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 

EN UPP Á MÓTI KEMUR ÞAÐ AÐ ÉG Á BESTA KÆRASTA Í ÖLLUM HEIMINUM!! :)

 

eNn við urðum líka heppin í dag.......LOKSINS!!!!!

Fundum íbúð, skrifuðum undir leigusamning og erum búin að fá lyklana!! :) jibbííí getum flutt inn á morgun, EN Bragi er akkúrat að fara að vinna fyrsta vinnudaginn sinn á morgun í 10 vikur, hann hefur ekki verið að vinna síðan Lilja dó....

En við erum að fara norður á morgun strax eftir vinnu hjá Braga, þannig við flytjum ekki inn fyrr en á sunnudaginn. En hittir ekki skemmtilega á að Bragi er að fara að vinna aftur á fullu 10 klst á dag!!! Ætluðum alltaf að vera búin að flytja áður en hann færi að vinn :( En ég bjarga því ein...hummmmm sófasett,þvottavél,þurrkari,uppþvottavél,ískápur.... JÁ fullt af stórum hlutum..Ég verð bara ein að bera þá ;) hehe ekki alveg...elsku bestu tengdó hjálpa :)

 

Íbúðin er frábær...107 fermetrar, 2 hæð í blokk,3 herb. GLÆNÝ ÍBÚÐ!!! ENGINN HEFUR BÚIÐ Í HENNI :) fylgir bílskýli með og geggjað stórar partýsvalir ;) hehe nei svalirnar eru sko geðveikar,stærstu svalir sem ég hef stígið á, þær eru svo breiðar, alveg frábærar. Baðherbergið er með sturtuklefa OG baðkar!!! Þvottahús í íbúðinni......BARA ÖLL ÍBÚÐIN ER GEGGJAÐ FLOTT!!!! You have to see for youre self :)

 

En brjálað að gera á næstunni...förum 3-4 sinnum norður í sept,3 skírnaveislur,tannlæknir,flytja,kaupa allt í íbúðina,koma okkur fyrir,Bragi byrja aftur að vinna....OG JÁ NÚMER EITT TVÖ OG ÞRJÚ ÉG Á AFMÆLI EFTIR EINN (1) DAG!!!!!!!JIBBÍÍÍÍÍ

 

Já og plús líklegast aðgerð á næstunni....Nóg að gera....

 

Heyrumst fljótlega, skrifið mér línur :) alltaf gaman að heyra frá ykkur

 

 

LOVE ´´ÁSDÍS LILJA...OG BRAGI SEGIR HÆ :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 20:38:30 / adylilja

komin aftur heim

ÓÓÓÓJÁÁÁÁ.....DENMARKWAS FUN :)

já geggjað gaman í Danmörku,gerðum svaka mikið........hvar á ég að byrja...mmmm...

Gistum fyrstu nóttina hjá Ósk og Gauta,hinar næturnar fengum við gestaherbergi sem hægt er að leigja á kolleginu sem Ósk og Gauti búa á...Það var snilld,alveg frábær staðsetning,og allt tipp topp :)

1 daginn eftir að við komum út fórum við að skoða skólann sem ég komst inn í í fyrra..löbbuðum um skólann og töluðum við kennara þar og fleira...Geggjað kósí skóli fín stærð á honum og staðsetning gæti ekki verið betri...jamm skólinn er bara hjá Strikinu...bara ein mínúta í allar búðirnar ;)

Já það hefði verið frábært hefði ég komist út :( en augun já blessuðu augun leyfðu mér það ekki :( En kannski seinna :)

 

Daginn eftir fórum sið í TÍVOLÍIÐ!!!jáhá vorum sko þar allan daginn og alveg til miðnættis. Það var sko geðveikt gaman. Bragi fór í öll tæki nema "fallturnin" hann fór sko 2 sinnum í stóra rússíbanan,hann fílaði það sko í tætlur!!!! Já ég fór ekki í öll tæki,þar sem augun þola það ekki, það er of mikill þrýstingur í sumum tækjunum.....EN ég fór í "róluna" sem fer upp í 80 metra hæð :) það var sjúklega gaman ;) Bragi greyið lokaði nú augunum í því tæki og sagði bara; Er þetta ekki að verða búið??? hehehe hann var mikið lofthræddur, já 80 metra hátt!!! Ekki fyrir lofthrædda-en ég fór samt...og ég er lofthrædd :/

 

Við fórum svo í nokkrar verslunarmiðstöðvar eins og Fields, Fisketorg og Amager center og fórum auðvitað á hið þekkta "strikið"....

Fórum í skemmtilega siglingu um Köben með leiðsögumann sem lýsti ýmsum flottum þekktum stöðum...Já Ósk og Gauti fóru með...og við Ósk sátum og vorum í spreng allan tímann ;) no toilet

 

Ó váá við gerðum svo mikið....fórum út að borða á mjög góðum stöðum...mæli með Jens Bufhus og Rimini..

Fórum svo öll 4 í matarboð til Rannveigar,ummm jammí Rannveig bara listakokkur. Takk fyrir okkur Rannveig :)

 

Bragi og Gauti voru svo á fullu að spila á gítara saman, já það hljómaði vel...mættu æfa sig aðeins meira saman... Við Ósk vorum mikið að spá í að senda þá á Strikið til að safna pening handa okkur Ósk svo við gætum verslað enn MEIRA ;)

 

ÞAÐ VAR SKO MIKIÐ GERT AF ÞVÍ!!! VERSLAÐ!!!!

Já í þessarri ferð keyptum við 2 auka ferðatöskur!!! í Mallorca ferðinni keyptum við 3 aukaferðatöskur!!! já við höfum keypt mikið undanfarið!!!!

Shit svooo mikið!!! Kayptum 2 fullar ferðatöskur af BARNAFÖTUM!!! ohhh god var að ganga frá í gær barnafötum ofan í töskur til að fara með norður næstu helgi (lofaði að sýna nokkrum barnafötin)....og SHIT það eru 4 kúg fullar ferðatöskur!!!! OG ÞAÐ ER SKO EKKI ÖLL BARNAFÖTIN, ERUM MEÐ FULLT Í VIÐBÓT, 6 HÆÐA KOMMÓÐU OG MIKIÐ MEIRA EN ÞAÐ!!!!!

 

En já hvað get ég sagt....ÉG ELSKA AÐ KAUPA BARNAFÖT!!! Bragi sagðist ætla að senda mig á AA fundi til að reyna að hætta að kaupa barnaföt ;) hehe

 

Ferðin var sem sagt æðisleg...og takk Ósk og Guti fyrir allt saman....tökum pool (púl) aftur seinna það er sko algjört möst :)

fórum sem sagt í púl og það var geggjað stuð...ég og Ósk á móti strákunum....við erum auðvitað betri ;)

 

En já næstu helgi förum við Bragi til Akureyrar, það er verið að fara að skíra litlu dúlluna hennar Söru og Egils. Hún verður skírð laugardaginn 2 september!!AFMÆLISDAGINN MINN :)

 

JIBBÍÍÍÍÍÍ ÉG Á AFMÆLI EFTIR 5 DAGA!!!!!!!

 

Er ekki að verða gömul er bara að verða 27!!! já ég hræðist sko ekki að eldast eins og margir...Fyrir nokkrum mánuðum var ég beðin um skilríki þegar ég ætlaði að leysa út vinning sem ég vann í spilakassa á Bónusvídeó!!!! ummm halló???? og fyrir 2 árum var ég spurð hvort ég væri 16 ára!!!!

já það er gott að vera unglegur, ég get nú sagt ykkur það ;)

 

Jæja ætla að fara að breyta eða bæta inn á síðuna einhverju dóti og horfa svo á Contender...Takið þátt í könnuninni og skoðið ef ég kem inn einhverju myndum og öðru nýju...

 

Love Ásdís Lilja....


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 00:46:13 / adylilja

Danmörk á morgun !!!!

hæhæ

 

 



Takk æðislega fyrir kveðjurnar á síðasta bloggi sem ég skrifaði.

 

 



Ég og Bragi ákváðum að skella okkur til Danmerkur á þriðjudaginn 15.ágúst

og vera þar í 10 daga. Hættum við að fara til new york þar sem búið er að vera 38 til 40 stiga hiti þar.

 

 



Þið sem ég þekki í Denmark endilega hringið í mig frá 15-25.ágúst. Langar að hitta alla.

 

 



Verðum í köben og förum líka til óðinsvé þar sem bróðir hans Braga býr.

 

 



Erum ekki að fara að gera neitt sérstakt í Danmörku nara chilla,skoða skólann sem ég fékk inngöngu í í fyrra, og bara kíkka á umhverfið.... Og já auðvitað TÍVOLÍ ;) hehe.. fékk leyfi frá augnlækninum að fara í tívolí....jibbííí ;)

 

 



Jamm fór til augnlæknis fyrir viku síðan, fínt að frétta bara þaðan...Það verður ekki gerð aðgerð á augunum eins og stendur,það verður endurskoðað aftur eftir 4 mánuði (fyrr ef það fer að blæða í augunum eða eitthvað)..En meðan það er engin blæðing eða neitt nýtt að gerast í augunum þá vill læknirinn láta þau í friði um tíma......

 

 



Já doksi gaf mér leyfi að flytja úr landi, sem lengi sem ég kem í eftirlyt :) væri spennandi að flytja til Denmark og reyna að fara í skóla en það gengur ekki þar sem ég gæti aldrei lesið í tímum og þar af leiðandi ekki leyst verkefnin í tímunum.....en gæti lesið heima með lesbúnaðinum sem ég er með (en sá búnaður er svo stór og ekki hægt að taka hann með í skólann).

 

 



Já það er svo mikið sem mig langar að gera og hausinn á mér hringsnýst fram og aftur....langar að flytja bæði hér á landi eða fara til Denmark,langar í annað barn,langar í skóla...já hugurinn er á milljón alla daga hjá mér....kemst ekki að niðurstöðu hvað er best og í hvaða röð....nú svo vonandi fer ég í aðgerðina í Svíþjóð seinna meir...þori ekki strax upp á ef ég gæti ekki átt börn eftir aðgerðina.....OOHHHH JÁ ÞETTA ER ERFITT REYNA AÐ ÁKVEÐA EITTHVAÐ FRAM Í TÍMANN..ÞAÐ HEFUR ALDREI GENGIÐ HJÁ OKKUR BRAGA...alltaf þegar við ákveðum eitthvað fram í tímann hefur það ekki gengið upp...

 

 



Já ef lífið væri bara kvef og hálsbólga nokkrum sinnum á ári eins og hjá sumum.....Shit hvað ég myndi dansa í gegnum lífið ;) hehe bara að stríða ykkur ;)

 

 



 

 



En já klukkan er víst orðin hálf eitt að nóttu þannig það er kominn 15 ágúst!!!! And what does that mean?? DENMARK BABY...JÚHÚ HERE WE COME... förum í loft kl 13:15 á morgun já aðeins 12 klst í það ;) jibbííí

 

 



Jæja ætla að fara að taka mig til og klára að gera allt klárt...

 

 



 

 



Heyrumst þegar ég kem aftur heim...

 

 



Love Ásdís Lilja


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 01:36:49 / adylilja

Sorgarfréttir!!!

Já 20 júní skrifaði ég síðast...LANGT S’IÐAN ég veit....En lífið hefur sko heldur betur umturnast!!!! Já maður var loksins á rólegri siglingu í lífinu og bara að bíða eftir að barnið kæmi í heiminn og vonandi betri sjón kæmi og við fynndum íbúð....

En báturinn hvolfdist á einni nóttu og okkur Braga var steypt í kaf-ENN EINU SINNI... um leið og maður er við það að klóra í bakkann og rífa sig áfram eftir áfall þá kemur annað áfallið um leið!!!

 

2 dögum eftir að ég skrifaði inn á heimasíðuna síðast, sem sagt 22 júní kl 6-6:30 að nóttu til missti ég legvatnið!! Já var gengin 20 vikur!! Átti aðeins 15 vikur eftir af meðgöngunni (fæ ekki að ganga með 40 vikur). Já vaknaði við það að lak og lak úr mér...hringdum á meðgöngudeildina á sjúkrahúsinu og okkur Braga var sagt að koma upp eftir kl 8...já takk fyrir máttum ekki koma fyrr því engin gat tekið á móti okkur!!! Við komum svo kl 8 var skoðuð, allt legvatnið var farið en barnið enn á lífi.. Var sagt að ég ætti bara að liggja á sjúkrahúsinu í 2 daga og sjá til.... En rétt um hádegi fór að blæða og barnið dáið L ég fékk samdráttarverki svaka slæma. Barnið var komið með annan fótinn niður leghálsinn en ekkert annað kom. Þá var mér gefið dripp í æð til að koma fæðingunni af stað....en ekkert gerðist..Svo loksins fékk ég einhverja stíla og magnaði það verkina mikið...4 klst eftir það fæddi ég litla krílið okkar L já þurfti að fá þvílíka útvíkkun því hendin á lækninum varð að vera inni í mér alla fæðinguna...já mjög smekklegt eða hitt þó :/ eftir fæðinguna var ég látin liggja bara í klukkutíma með naflastrenginn lafandi úr mér..það var ekki hægt að setja mig strax í svæfingu til að fara í skröpun. Og by the way var látin fæða inn á stofunni sem ég svaf svo í....bara í rúminu...

 

Þetta var rosalegt.....engum manni óskandi að ganga í gegnum.... Samdráttarverkirnir stóðu yfir í um 12 klukkutíma... þótt það hafi verið sárt þá var allur sársaukinn í því að vita það að barnið var dáið og ég var látin fæða dáið barnið mitt sem ég hef beðið eftir...búin með 5 mánuði,var að fara að byrja á 6 mánuði L

 

Litli engillinn minn fæddist kl 20:20 þann 22.06.06

 

Í dag erum við enn að bíða eftir niðurstöðu um hvað kom fyrir...kemur í ljós í lok ágúst.

 

Við erum bæði búin að skíra og jarða engilinn okkar...... Já eins og ég sagði frá degi eitt....ÞETTA VAR STELPA J 99,9% af fötunum sem ég var búin að kaupa (sem var meira en á 7 börn til samans) að þá voru fötin bleik...vorum búin að kaupa eina 20 kjóla!!!

En litla prinsessan var skírð LILJA DÍS...Liljur eru fallegustu blómin...svo heiti ég Lilja J já litla Liljan mín kalla ég hana J J

 

Lilja var jörðuð milli ömmu minnar og afa hér á Akureyri....alveg svakalega fallegt leiðið hjá okkur,eigum bara eftir að setja legstein. Athöfnin var í kyrrþey og var rosalega falleg...Líkkistan var fallegasta kista sem ég hef séð,hún var svakalega falleg...Já orð geta ekki alltaf lýst öllu,ég mun reyna eftir svona mánuð að setja inn einhverjar myndir og fl...það er bara alltaf eitthvað að koma upp á að ég hef ekki orku eða tíma í það...sorry.

21 júlí var Lilja jörðuð, sama dag og Ása systir á afmæli og sama dag og systir pabba dó.. greinilega lukkudagur,,,fæðing,deyja,jarðað

 

Við Bragi erum búin að vera fyrir norðan meira og minna síðan Lilja dó....og erum enn hér fyrir norðan.. Bragi er í fæðingarorlofi....eftir 18 vikna meðgöngu á maður rétt á 2 mánuðum í fæðingarorlof ef barn fæðist andvana..

 

Svakalega erfiðir tímar hafa verið..en við erum að klóra í bakkann og rísa upp...

Já þeir sem þekkja mig vita það að ég leggst sko ekki upp í rúm og gref mig... nei þá gæti ég nú alveg eins látið smíða kistu fyrir mig og látið grafa mig hjá dóttur minni....

Nei ég tel að maður eigi sko að njóta þess að lifa...já meðan sjónin er og ég stend á báðum fótum og er EKKI inn á sjúkrahúsi þá er best að lifa!!!

Halda haus og halda áfram...já það er sko ekki alltaf auðvelt... nú er bara að reyna að lyfta sér upp og gera eitthvað....

Hummmm jamm mér datt í hug að við Bragi færum til Bandaríkjanna að flakka um eða flakka um Evrópu J já við erum að spá í að fara frekar til USA til New York, Whasington og Boston og eitthvað...

Ef einhver á það skilið að fara eitthvert eða gera eitthvað eða fá eitthvað...jáhá þá er það ég!!! Góð með mig????NEI Sannleikur??? J’A’A’A J

 

Ef ég horfi yfir síðasta eitt árið...pælið í því eitt ár!!!! Hvað er búið að gerast???

 

Ég var að fara að uppfylla drauminn minn að mennta mig að verða næringarfræðingur!!! Já komst í einkarekinn skóla sem nokkrum er hleypt inn í á ári...Var komin með draumaíbúð í Köben, Búin að borga flugið út og borga fyrir bílinn minn með Norrænu. Já allt draslið var komið í kassa og búin að pakka öllu nema fötunum.... Já ég þurfti að gefa þennann draum frá mér sem er búin að vera draumur minn (að verða næringarfr.) síðan ég var rétt um7-8 ára.. Þessi draumur var settur í bið,og guð veit hve lengi.....já svo varð ég að hætta að vinna,hætta að keyra...já missti sjónina á öðru svo smám saman á hinu...verð ólétt svaka hamingja sem var svo rifið í burt frá mér...og þvílík sorg að fæða dáið barn og jarða barnið sitt....

Það er svo mikið búið að gerast á einu ári L já lífið er sko ekki sanngjarnt!!! En guð leggur ekki meira á mann en maður þolir... já þessa setningu er ég búin að heyra oft síðasta mánuðinn.... Ég held líka að ég sé að breytast í stál.... nei come on, var ég Hitler í fyrra lífi? Gerði ég eitthvað slæmt til að verðskulda alla þessa óheppni og sorg?? Nei ég held ekki... En ég tek lífinu bara eins og það kemur.... þrumur eða sól í veðri... sólin fer að fara að skína skært á okkur Braga bráðum....

 

En ætla að segja þetta gott í bili... fer kannski út í 2 vikur læt vita síðar við tækifæri....

 

Love Ásdís Lilja og englaljóssið mitt sem skín skært


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 16:59:07 / adylilja

AUGNLÆKNIR Á MORGUN!!!

vá úrvalið af íbúðum gæti bara ekki verið MEIRA....Alveg ótrúlegt en við erum búin að sko'a 7 íbúðir á minna en viku með þessari sem við erum að fara að kíkka á í kvöld...já alla daga!!!! Maður er að verða vitlaus á þessarri blessaðari íbúðarleit :(

 

 



Já okkur datt í hug að ef við myndum finna fína íbúð á um 60 þús til að leigja þá er það fínt og kaupa þá frekar eftir ár sirka.....þá verður kannski íbúðarverð búið að lækka, en aðalástæðan er nú sú ef við myndum leigja er vegna þess að við finnum ekki réttu íbúðina sem við viljum :( Við höfum jú fundið 2 íbúðir, báðar í sömu blokk glænýjar!!! Önnur kostar 28 milljónir og hin 24,9 millur...AÐEINS OF MIKIÐ :/

Já ég vil sko ekki hvaða greni sem er.....ef við eigum að búa fyrir ofan aðra hæð í blokk þá VERÐUR að vera lyfta..Ætla sko ekki að halda á litlu kríli og kannski innkauparpokum upp á 3 hæð eða ofar....Ég gæti það... en MÁ ÞAÐ EKKI, halda ennþá á neinu þungu :(

 

 



Já þannig þessi íbúðarleit er geðveiki...of lítið,of ljótt,of ílla farið,vantar baðkar eða þvottahús er inni á baðherberginu...Ekki að ræða það að ég fari í slíkt!!! Nei ég vil sko fá að njóta þess í baði ekki með helv...þvottavél í gangi og maður verður nú alltaf að þvo af litla krílinu ;)

 

 



Já annars fínt að frétta..ALLA VEGANNA ÞANGAÐ TIL Á MORGUN!!!!! ÞÁ VEIT GUÐ EINN HVAÐ GERIST...JAMM MÍN ER AÐ FARA TIL AUGNLÆKNIS...JÁ SJÓNIN ER EKKI GÓÐ HEFUR VERSNAÐ MIKIÐ MIKIÐ :( OG ÉG VEIT EKKI HVORT ÞAÐ SÉ ÚT AF ÓLÉTTUNNI, EÐA AÐ SJÓNHIMNAN HEFUR TOGAST MEIRA TIL... :(  JÁ EKKI GOTT!!!

EN ALLT KEMUR Í LJÓS Á MORGUN...MIG HLAKKAR EKKERT TIL!!! EN ÞAÐ ER BEST AÐ LJÚKA ÞVÍ AF OG FÁ AÐ VITA STRAX HVAÐ ÞAÐ ER AÐ GERAST..... VONANDI BARA EKKI AÐGERÐ Á NÆSTUNNI MEÐAN ÉG ER ÓFRÍSK :(

 

 



 

 



En fórum í mæðraskoðun í morgun (Bragi engill kom auðvitað með mér,besti besti LANGBETI kærasti í öllum heiminum passar mig eins og lítill engill :)

 

 



Skoðun kom fínt út legið komið aðeins hærra en venjulega á þessum tíma meðgöngunnar..... Verkir sem ég er búin að vera rosa slæm af síðustu vikur er eðlilegt MIÐAÐ VIÐ HVERNIG LEG ÉG ER MEÐ (smekklegt, I know) En litla sæta hjartalaga legið mitt er tvískypt með vegg og mikið minna pláss en í venjulegu legi, þannig þegar það stækkar þá teygist svo hrðilega ílla á því...verkirnir eru bara deadly.....En ekkert kvabb.....maður má bara kvabba ef augun eru eitthvað að segja til sín ;)

 

 



Jæja rétt að láta heyra í mér áður en augnlæknatíminn er á morgun...jamm meðan ég get skrifað... :-(

 

 



skrifa seinna fréttir af augunum og svona :)  :/

 

 



Bæjó alles.... Ásdís &bumbukrílið sem stækkar hraaaaaat ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 16:40:14 / adylilja

hellú

Hellú alltaf jafn lítið að gerast hjá manni en samt svo mikið :/

 

 



Já Bragi er búinn að vera að vinna um 15 klst á dag í viku og líka um helgina þannig ég er bara búin að vera að hanga og gera ekki shit....nema skoða íbúðir og glápa á FRIENDS....En Bragi varð samt að hætta kl 17-18 í gær því við fórum í Hafnarfjörðinn að skoða íbúð..og eitthvað að vesenast....

 

 



En erum að fara líka á eftir að skoða eina glænýja íbúð hjá Vatnsenda (nýja hverfið í Kóp)

 

 



Ooohhhh mamma, pabbi og Ásrún systir eru að fara til Ástralíu eftir 4 daga!!!!!!! og verða þar í mánuð......Shit mig langar svooooo mikið með!!!!!  En ég myndi springa í fluginu af bjúg, ég myndi aldrei þola flugið sem tekur um 2 daga!!!!  En svo þarf maður að fara að spíta í lófana og gefa í ef maður ætlar að vera fluttur áður en ég verð orðin svo stór á bumbunni að ég dett fram fyrir mig ;) en flutningum og öllu því veseni verður að vera lokið áður en litla Bangsímon krílið okkar kemur í heiminn ;)

Og er ég hálfnuð með meðgönguna....jibbííí.... fáum einmitt að vita kynið 26 júní bara nokkrir dagar þangað til :)

 

 



Best að fara að drífa sig og vera til þegar hunangshnoðrinn minn kemur heim úr vinnunni....þurfum að ná á vissum tíma til að skoða íbúðina :)

 

 



bye bye

 

 



 

 



P.S.  Hæ Sigrún (Páls)...geggjað gaman að heyra í þér...ég er einmitt búin að hugsa svo oft til þín,,,,Það væri æði að hittast, þú getur alltaf hringt eða sent sms til mín en númerið mitt er 8675740... ég er ekki með númerið þitt ;/

Endilega láttu heyra í þér :)

 

 




» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 12:10:20 / adylilja

Back 2 Iceland

jæja komin heim í góða veðrið á Íslandi ;)

 

 



Það var geggjað gaman á Mallorca, degi fyrir brottför ákváðu mamma, pabbi og systur mínar að skella sér með :)  Þau voru nú bara í því að sleikja sólina á ströndinni og vera í sjónum..... En það er ekki fyrir mig og Braga litlu hvítingjana að liggja og láta brenna okkur lifandi... Nei við erum meira fyrir að versla og versla meira og versla enn meira ;) já við feyptum dágóðan slatta að við þurftum að kaupa 3 nýjar ferðatöskur þarna úti og samt komst ekki allt fyrir, mamma og co þurftu að geyma dót fyrir okkur líka ;)

En við Bragi erum svo hrifin af afrískudóti og egýpsku líka þannig það var keypt meira en 1 full ferðataska af því.... Svo keyptum við auðvitað GEGGJAÐ MIKIÐ af barnafötum á rúsínuna okkar í bumbunni....vitum ekki hvort kynið það er þannig það var bara keypt gult,rautt,grænt,blátt,hvítt og allskonar skærir litir...En keyptum geggjað mikið af pilsum og kjólum EF það kæmi lítil prinsessa hjá okkur..... En við urðum þá nátturulega að kaupa fullt af hárskrauti líka hehe :)

Og oh my god skórnir sem við keyptum GEGGJAÐIR keyptum 5 eða 6 skópör á krílið...

Svo keyptum við auðvitað allt það flotta sem við fundum með Bangsímon...Ó JÁ ÉG ELSKA BANGSÍMON :) HANN ER SVO MIKIÐ KRÚTT, ég á meira að segja Bangsímon tölvuleik í Playstation tölvuna okkar (leikurinn er gerður fyrir 3+)

En úti keyptum við sæng og sængurföt og borðlampa allt með bangsímon, eina ferðatösku og lítinn bakpoka og svo bangsa líka með Bangs... Já alveg fullt...

Við eigum orðið svo mikið af barnafötum upp í 1 árs- 1 ½ árs.. að við verðum í því að skipta um föt svo þau verði öll notuð :)

 

 



En frábær ferð, lág aldrei í sólbaði, fór aldrei í sjóinn, en fór í sundlaugagarðinn við hótelið og lág þar flatmaga á vindsæng í sundlauginni, en það gerðist bar 2 sinnum.... Já sumir eru mikið hissa en ég hef sko enga þolinmæði í að liggja bara kjurr í brjáluðum hita og verða eins og steiktur kjúklingur...nei ég hlýt að vera tekin annars staðar frá þar sem allir aðrir í fjölskyldunni nenna því....

Ég er meira fyrir að versla og skoða mig um og svona.... Enda fórum við Bragi mikið ein hingað og þangað....

 

 



En þótt ferðin hafi verið lúxus þá voru nú ekki lappirnar mínar það eftir flugið út, en þær urðu þrefaldar án gríns og er ég enn að reyna að ná því af mér.... En svo stækkaði ég slatta beint framan á bumbunni þarna úti...það er bara ótrúlegt ég bara vaknaði á morgnana stærri, bara á kúlunni...já ég er sko farin að stækka hratt...

 

 



hummm hvað á ég að segja ykkur meira...

Já helvítis spánverjar fyrir að hafa allar gangstéttir,tröppur og göturnar allt eins!!!!! ENGIN LITA MUNUR NÉ NEITT TIL AÐ AFMARKA GANGSTÉTT EÐA TRÖPPUR EÐA BRÚNIR Á GANGSTÉTTUM.... :(

Ég hrundi næstum niður stigann hjá hótelinu þar fyrir utan, Bragi greyið sem er mín hægri hönd og sú vinstri greip í mig annars hefði ég fengið slæma flugferð niður tröppurnar, en þetta gerðist fyrsta daginn eftir að við lentum(komum eftir miðnætti þannig fórum ekkert út þá)......

En ég mundi eftir tröppunum eftir þetta....En það voru nú samt fleiri skipti sem ég hrundi næstum hressilega...En litli engillinn minn sá um það að ég flaug ekki á bumbuna.

Já það er sko erfitt að fara í nýtt umhverfi svona sjónskert!!

Fyrir utan það að þá sé ég EKKERT í myrkri.... EKKI NEITT!

 

 



En maður er alltaf að læra eitthvað nýtt og þar á meðal fyrir mig að læra hvar allar tröppur og kantsteinar eru alls staðar sem ég fer :(

 

 



En nóg um það....

 

 



Ohhh já ég er sko ekki hrifin af spænskum mat!!! skiptir ekki hvað það er... Ég kaupi aldrei kjöt né pylsur á veitingarstöðum þarna úti, drekk ekki útlenska mjólk og ég vil ekki sjá jógúrtina, svo finnst mér grænmetið ekki sérstakt heldur... já þannig við fórum lítið út að borða nema fengum okkur McDonalds og svo gat ég nartað í bita og bita af pizzu hjá Brag,en þá varð ég að biðja um hana X-tra mikið grillaða....Ég er svo hrædd við að fá eitthvað hrátt eða sýkt að mér hryllir bara við tilhugsunina...

En ég lifði á brauði með smjöri og cherry tómötum.... en fékk svo klígjur fyrir brauðinu líka....ég sagði við Braga þegar við vorum að éta brauð; ég skal veðja við þig að þetta brauð er ekki útrunnið fyrr en um miðjan júní::.  Brauðið var nefninlega óvenju mjúkt og bara eins og svampur þannig vissi ég að það væri sko rotvarnarefni í stórum mæli í brauðinu... En Bragi athugaði fyrir mig...OG JÁ TAKK MÍN HAFÐI SKO RÉTT FYRIR SÉR EINS OG ALLTAF ;) BRAUÐIÐ VAR EKKI ÚTRUNNIÐ FYRR EN UM MIÐJAN JÚNÍ...ÞANNIG GEYMSLUÞOL BRAUÐSINS VAR 3-4 VIKUR!!!!!! OOOOOOOOHHHHHH JAKK!!!!

 

 



Já ég kýs íslenskan mat og íslenskt vatn takk :)

 

 



Já ég er mikill útlendingur í mér og elska að ferðast og mun búa úti seinna meir og hef búið úti 2 sinnum áður.....  En það er samt ekki hægt að segja annað en að mér finnist íslenskur matur,vatn og grænmetið miklu betra í alla staði!!!

 

 



Á sumum veitingastöðum úti er það þannig að þú getur ekki valið þér á pizzurnar, verður að velja beint af matseðlinum.......það er vegna þess að þær eru keyptare tilbúnar frosnar og skellt beint í ofninn eða í örbylgjuofninn!!!!

 

 



 

 



En nú erum við Bragi alveg á fullu að skoða íbúðir til að kaupa, erum búin að fara með einhverja pappíra í greiðslumatið en eigum eftir að skila inn 2 pappírum í viðbót.....en þá fara hlutirnir að rúlla hraðar vonandi.... Ég vil vera búin að koma mér vel fyrir og allt verði tilbúið áður en barnið fæðist og líka áður en ég verð mikið stærri því það gerist hratt!!!  Ég vil sko ekki vera á 4 fótum og eiga kannski eftir að parketleggja alla íbúðina mála kaupa ALLT inn í íbúðina, raða og skipuleggja og bara ALLT!!!!!!! Vá það er sko ekki hægt ef maður er orðin ekkert annað en bumban og maður síþreyttur!!! Það má reyna að bjóða öðrum það en ég myndi gjarnan vilja sleppa því, vil ljúka þessu af meðan ég er aðeins nettari en ég á eftir að verða ;)

 

 



Við höfum bæði verið að skoða íbúðir í nýja hverfinu hjá Vatnsenda (203 Kópavogur) og eitthvað annað hverfi í Kópavoginum (hinum megin við Smáralind er rólegt og barnvænt hverfi, svo Grafarvogur, Grafarholt og Hafnafjörður þetta eru staðir sem kkoma til greina....

En allir eru að spurja afhverju við kaupum ekki á Akureyri??? En það er bara ekki hægt eins og staðan er núna og líklegast næstu 3-6 árin...alltaf hjá læknum hér í Rvk..það eru engir læknar á Ak... Svo á ég eftir að fara í fleiri aðgerðir þannig Reykjavík is the place 4 us now...svo er Akureyri of lítil fyrir mig, veit það er samt betra að ala upp börn þar..

 

 



 

 



En já þetta eru svona hlutirnir sem eru að gerast hjá okkur lítið kríli í bumbunni sem stækkar og stækkar, íbúðaleit (höfum ekki enn dottið niður á "réttu" íbúðina, erum að leita alla daga!) og nýkomin frá Mallorca....

 

 



Fórum í bíó í gær í Lúxussal með Stebba bróðir og Guðbjörgu en þau eru í Rvk til að kaupa barnarúm og skiptiborð fyrir þeirra kríli sem styttist í að komi í heiminn :)

En fórum á myndina Poseidon, mynd um skemmtiferðaskip sem sekkur og svoleiðis....mjög góð mynd fannst okkur :) ummm fengum fullt af fríu poppi og gosi...

 

 



Jæja ætti kannski að vekja engilinn minn og fara að klæða mig sjálf ;) svo maður geti nú gert eitthvað í dag...langt helgarfrí hjá Braga,já og hjá fleirum..gaman gaman :-)

 

 



 

 



Takk já allir fyrir kveðjurnar um daginn á síðasta bloggi.... :)

 

 



Ég þarf að læra að setja myndir inn á bloggið á svo mikið af þeim...

 

 



Kveðja, Ásdís, Bragi og Bangsímon-kríli ;)

 

 



 

 




» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 17:35:05 / adylilja

ÓFRÍSK,MALLORCA.....

VÁÁÁÁÁÁ fullt að frétta....veit varla hvar ég á að byrja!!!! Þú verður bara að hafa þolinmæði og lesa ALLAN TEXTANN ;)

 

 



Hummm......Það eru ALLIR ófrískir....Já Ása systir er ófrísk, Guðbjörg mágkona (með Stebba bróðir),svilkona mín (með bróðir Braga), ein besta vinkona mín á AK, og 2 vinkonur hennar Ásu systir.....

 

 



Já og tengdamamma (Hildur) sagði við mig í byrjun mars; ætlið þið Bragi ekki að fara að koma með kríli líka???

Og ég hélt nú ekki, nýbúin í aðgerðum og hálf sjónlaus....OG SVO SAGÐI ÉG LÍKA;   ÉG VIL SKO EKKI FÆÐA BARN INN Í FUGLAFLENSUNA SEM KEMUR!!!!!!!

Því ef hún kemur verð ég líklegast með þeim fyrstu sem smitast af henni....miðað við mína heppni heilsufarslega séð!!! :-/  Já svo sagði ég líka að það yrði ekkert spennandi að koma með barn á sama tíma og allir aðrir!!  Og EF SVO FÆRI AÐ ÉG YRÐI ÓFRÍSK,ÞÁ MYNDI ÉG SKO VILJA EIGA BARNIÐ SÍÐUST AF ÖLLUM...EKKI FYRST NÉ Í MIÐJUNNI!!!

 

 



En svo 6 mars þá segi ég við Braga greyið sem var alveg að sofna (ég var að reyna að halda honum vakandi því kl var bara 20) ég segi Bragi ég er ólétt (var bara að grínast til að fá hann til að vakna)..gékk ílla by the way ;)

En var komin 2 vikur fram yfir....sem að vísu var eðlilegt eftir allar augnaðgerðirnar og allt saman....  En daginn eftir tók ég pissuprufu og það var jákvætt ;) EKKI ÞAÐ SEM VIÐ BJUGGUMST VIÐ!!!!!!! Já ég hefði sko þurft miklu lengri tíma til að jafna mig eftir aðgerðirnar og reyna að ná einhverjum bjúg af mér.....  En eftir að ég komst að því að ég væri ólétt var ég tekin strax af öllum lyfju og þyngdist við það 10 kíló á 10 dögum....gaman gaman!!!!

En einhver ógleði hefur verið eins og gengur og gerist og átti ég nokkrar vikur svaka slæmar, þar sem mér var óglatt ALLAN SÓLARHRINGINN....Það er ekkert að því

að æla....lenti nú í því í gamla daga að æla heila mánuðina saman.... En  þessi blessaða morgunógleði varð ég að "halda í mér" JÁ AUGNLÆKNIRINN BANNAÐI MÉR AÐ ÆLA!!! ÞAR SEM ÞAÐ REYNIR ALLTOF MIKIÐ Á AUGUN!!!! oooohhhh shit það var sko EKKI auðvelt að halda ælunni inn í sér...

 

 



En nóg um æluvesen.....nú vitið þið það öll að ég er ófrísk :) Er komin 16 vikur eftir nokkra daga (er að byrja á 5 mánuðinum....vá hvað þetta líður hratt).

 

 



 

 



Var fyrir norðan um daginn í næstum 2 vikur!!! gerði mest lítið, skrapp í sund með hinum "bumbulínunum" Ásu og Guðbjörgu...fór í matarboð og fáar heimsóknir....Skrapp í heimsókn til Gunnhildar perluvinkonu minnar og "hin mamma mín" eldaði hún uppáhaldið mitt sem ég fæ hjá henni Lasagnea og hvítlauksbrauð og Diet coke með oooohhhhh jammíí og horfðum á æðislega stelpumynd ;)

Við Gunnhildur eigum svo vel saman báðar sjáum við ekkert perfectly.... hehe við skemmtum okkur alltaf vel...

 

 



Við Bragi fórum svo aftur norður um síðustu helgi til að fara í 60 ára afmæli hjá pabba ;) Það var æðisleg veisla og geggjaðar kökur ;) jjammííí jammmm

Já það var svakalega gaman :)

 

 



Á fimmtudaginn síðustu viku ákvað ég og Bragi að skella okkur til BENIDORM......EN þegar ég var að panta ferðina (átti bara eftir að borga með vísakortinu), þá ákvað ég að tékka á því hvað myndi kosta til MALLORCA, bara bera saman verð af forvitni.... Til þess að fá upp verð fyrir 2 með hóteli þurfti ég að hálf bóka ferðina(átti bara eftir að borga með vísa ).....

Ég var með báðar síðurnar opnar á netinu og flakkaði á milli þeirra Benidorm og Mallorca, svo ætlaði ég að X-a í burtu síðuna með Mallorca og klára að panta til Benidorm... EN X-aði í burtu vitlausa síðu...Og ég hélt áfram að bóka ferðina sem ég HÉLT að væri til Benidorm.....En það var vitleysa hjá mér...hummmm ég pantaði ÓVART TIL MALLORCA!!!!! EN FRÁBÆRT :) VILJUM BARA KOMAST EITTHVERT ÚT ALVEG SAMA HVERT :)

En við förum á morgun 23 mai (þriðjud) jibbíííí erum geggjað spennt, ætlum bara að vera í viku, það er nóg í bili er að stækka hratt á bumbunni ;) og Bragi engill þarf að vinna..

 

 



 

 



Jæja jæja...margt gerst á stuttum tíma...ófrísk, tvisvar til Akureyrar, stórafmæli og utanlandsferð á morgun júhúú

 

 



Verð að fara að klára að pakka ;)

 

 



 

 



Love Ásdís Lilja :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 20:47:40 / adylilja

NEGLUR og til AK

Jibbíííí allt að gerast á morgun :)

jamm við ákváðum að skella okkur norður til Akureyrar um helgina eftir vinnu á morgun hjá Braga :) þar sem er frí á mánudaginn hjá honum....

Bragi fer aftur suður á mánudag, en ég býst við því að ég verði bara lengur...þar sem ég tók mér "FRÍ" frá læknum alla næstu viku.....já halelúja...það liggur við að maður þorir ekki að fara langt frá sjúkrahúsinu hér í RVK....Ég gæti kannski "leigt" læknana mína svona þegar ég fer í frí ;) hehe

 

 



En er geggjað spennt að fara heim, eins og alltaf :)

Ætla að taka NAGLADÓTIÐ mitt með norður.... Fyrir þá sem vita það ekki þá kláraði ég naglaskóla í fyrra og er með alþjóða-skírteini, er naglafræðingur :)

En missti sjónina rétt eftir að ég kláraði námið, var rétt byrjuð að vinna við þetta á snyrtistofunni sem mamma hans Braga á ( snyrtistofan Xanadu, geggjað flott stofa....lang flottasta og besta stofan sem ég hef farið á...og þær eru sko margar :)

 

 



En þar sem það er cirka ár síðan ég hef getað gert neglur þarf ég að æfa mig upp á nýtt!!!! rifja upp og vinna upp hraða.....púff var komin í það að vera bara 2 tíma með neglur m/french manicure....núna býst ég við að vera leeeengi með þessa sjón....en er að fara á morgun og kaupa sérstakan lampa til að gera neglur í genum"...með stækkun....

En svo ég get orðið góð í að gera neglur aftur vantar mig slatta mörg módel sem ég má æfa mig á..aðallega neglur með french manicur (hvítt framan á ;)  og svo gera naglaskraut og svo steyptar neglur....

 

 



Ég er komin með 3 módel, byrja á Ásu systir og Helgu  vinkonu og Huldu... En Helga er í prófum svo það býður þangað til hún er búin :) og Hulda er lasin,þannig ég má ekki koma nálægt henni :(

Svo mig vantar fleiri módel, ef einhver vill :-)  just let me know.. (allt frítt svo það sé eingin misskilningur) :)

 

 



En annars kem ég með fréttir bara um helgina.....

 

 



See ya later,

love Ásdís Lilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3